Fara í efni

Framlengdur umsóknarfrestur: Styrkir á sviði umhverfis- og samgöngumála

Framlengdur umsóknarfrestur: Styrkir á sviði umhverfis- og samgöngumála

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest um styrki úr sjóðnum og er hann nú til og með mánudagsins 3. október nk.  

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóleyju vegna nýsköpunar- og samstarfsverkefna á sviði umhverfis- og samgöngumála

Meðal áhersluverkefna í Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 eru nýsköpunar- og samstarfsverkefni á sviði umhverfis- og samgöngumála og ætlunin með styrkveitingunum er að hvetja til þáttöku atvinnulífsins í slíkum nýsköpunarverkefnum og styðja við verkefni sem tengja saman atvinnulíf og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að efla samstarf þessara aðila. Í ljósi þessa markmiðs verða aðeins veittir styrkir til lögaðila, en ekki einstaklinga.

Fjármunir til úthlutunar úr sjóðnum vegna þessa verkefnis eru nú 5,0 milljónir kr. Hámarksfjárhæð úthlutunar til einstakrar styrkumsóknar er 1,0 milljón kr. 

Með umsókn skal jafnframt fylgja 8-12 glæru kynning pdf-formi (pitch deck) þar sem fram kemur:

-Rökstuðningur þess að verkefni það sem so?tt er um styrk vegna sé nýsköpunarverkefni á sviði umhverfis- og samgöngumála og til þess fallið að tengja saman atvinnulíf og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og efla samstarf þeirra. 

-Greinargóð lýsing á verkefninu sem sótt er um styrk vegna, auk verk- og tímaáætlunar.

-Fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun), auk upplýsinga um aðra fjármögnun sé hún til staðar.

-Rökstuðningur þess að umsækjendur hafi faglega og fjárhagslega getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd.

Sé umsókn ekki til samræmis við framangreint verður hún ekki tekin til efnislegrar meðferðar.

Sjá starfsreglur sjóðsins á ssh.is/soley. Umsækjendum er einnig bent á að kynna sér Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins á  ssh.is/soknaraaetlun.


Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 3. október 2022.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 20. nóvember 2022.

Úthlutunarnefnd áskilur sér rétt til að leggja til að öllum umsóknum verði hafnað.

Nánari upplýsingar eru veittar á netfangið ssh@ssh.is eða í síma samtakanna 564-1788.