Fara í efni

Breytingar á skipulagi sveitarfélaga vegna Borgarlínu

Staðsetning Borgarlínu og auknar byggingarheimildir innan áhrifasvæða hennar

Breytingar á svæðisskipulagi:
Lögð fram til kynningar verkefnislýsing vegna breytinga á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að festa legu samgönguása fyrir Borgarlínu og setja fram viðmið um uppbyggingu á áhrifasvæðum.

Breytingar á aðalskipulögum:
Lögð fram til kynningar sameiginleg verkefnislýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016, Hafnarfjarðar 2013-2025, Kópavogsbæjar 2012-2024, Mosfellsbæjar 2011-2030, Reykjavíkurborgar 2010-2030 og Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að staðsetja legu Borgarlínu, helstu stöðva og skilgreina heimildir til uppbygginga á áhrifasvæðum.

Gögn:
Verkefnislýsingarnar er aðgengilegar á eftirfarandi stöðum:

? Skrifstofu SSH, Hamraborg 9, 200 Kópavogi og á heimasíðunni www.ssh.is/svaedisskipulag
? Bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ og á heimasíðunni www.gardabaer.is
? Ráðhúsi Hafnarfjarðar, Strandgöta 6, 220 Hafnarfjörður, og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
? Skrifstofu Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 200 Kópavogur, og á heimasíðunni www.kopavogur.is
? Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.mosfellsbaer.is
? Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík og á heimasíðunni www.reykjavik.is
? Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes og á heimasíðunni www.seltjarnarnes.is
? Skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.kjos.is

Frestur til athugasemda:
Verkefnislýsingarnar eru í kynningu frá 10. mars til og með 25. apríl 2017. Athugasemdir og ábendingar verða að vera skriflegar og þurfa að berast skrifstofu SSH eða á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags.

 Fleira á BORGARLÍNA