Fara í efni

Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Íbúafjöldi og umferðarálag á höfuðborgarsvæðinu hafa aukist á undangengnum árum. Framundan eru umfangsmiklar framkvæmdir vegna Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og á meðan og til framtíðar er mikilvægt að leita leiða til að bæta flæði samgöngumáta á svæðinu.
Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025 var að greina og móta sameiginlegar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu til að dreifa umferðarálagi betur. Efla verkfræðistofa var fengin til þess að vinna verkefnið og voru tillögur að aðgerðum m.a. mótaðar með því að rýna eldri tillögur, stefnur og aðgerðir, auk þess sem haft var samráð við fulltrúa menntastofnana og vinnustaða. Haldin var vinnustofa haustið 2025 þar sem um 30 fulltrúar frá stofnunum, fyrirtækjum, framhaldsskólum, háskólum og sveitarfélögum tóku þátt. Á vinnustofunni voru rædd málefni þessa áhersluverkefnis, þ.e. hvernig mætti dreifa álagi umferðar á höfuðborgarsvæðinu betur.

Í skýrslunni eru lagðar til yfir 20 aðgerðir sem unnt væri að innleiða á næstu tveimur árum. Aðgerðirnar gera ráð fyrir samstarfi og samhæfingu ríkis, sveitarfélaga, opinberra stofnana, menntastofnana, Strætó bs., Vegagerðarinnar og vinnustaða á almennum markaði.

Skýrslan inniheldur einnig áhugaverðar greiningar, meðal annars á ferðatíma á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur í ljós að ferðatími lengist um 20-30 mínútur á þeim leiðum sem skoðaðar voru eftir að framhalds- og háskólar hefjast síðsumars.



Myndin sýnir hvernig ferðatíminn breytist á leiðinni Hafnarfjörður – HÍ en fleiri leiðir eru greindar í skýrslunni.

Næsta skref er að forgangsraða tillögum skýrslunnar og bjóða hagaðilum til samstarfs um þær. Þegar hefur verið samþykkt að halda áfram með sjálfstætt verkefni sem byggir á  skýrslunni og því verkefni sem nú liggur fyrir.

Lokaskýrsla 

Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu - Sóknaráætlun