Fara í efni

Aðalfundur SSH 2022 -Formannsskipti

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Aðalfundur SSH var haldinn föstudaginn 18. nóvember 2022 í Félagsgarði í Kjósarhreppi. Auk almennra aðalfundarstarfa urðu formannsskipti í stjórn SSH. Formennska í stjórn samtakanna skiptist milli framkvæmdastjóra sveitarfélaganna þannig að hver þeirra gegnir því embætti í tvö ár.

Á fundinum tók Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, við keflinu af Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra Garðabæjar, og mun hún gegna formennsku stjórnar fram að aðalfundi samtakanna 2024.


SSH 20221118 Adalfundur 2022 DSCF4275m
Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH
og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar