Verkefni
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru samráðsvettvangur fyrir allt samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Sóknaráætlanir eru sameiginlegt verkefni ráðuneyta og sveitarfélaga með það að markmiði að færa aukin völd og ábyrgð til landshlutanna á forgangsröðun og ráðstöfun fjármuna frá ríkisvaldinu til verkefna á sviði byggðamála og samfélagsþróunar sem ekki eru falin öðrum með lögum. Tilgangurinn er að tryggja sem besta nýtingu fjármuna og færa ákvarðanatöku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna á sínum svæðum.
Helstu verkefni á vettvangi SSH er að hafa umsjón með áhersluverkefnum sóknaráætlunar landshlutanna hverju sinni en með sóknaráætlunum landshlutanna koma íbúar hvers landshluta sér saman um sameiginlega framtíðarsýn fyrir landshlutann og aðgerðir sem gagnast til að ná árangri til framtíðar.
Stjórnarfundir eru haldnir mánaðarlega, þar sem sameiginleg málefni og einstök úrlausnarefni sem kalla á samræmda nálgun og sýn eru rædd og afgreidd.
Stjórn SSH fundar oft og einatt með utanaðkomandi aðilum um málefni sem tengjast sameiginlegum hagsmunum svæðisins, s.s. Vegagerð ríkisins vegna vega- og samgöngumála, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vegna löggæslu o.fl.
Eftirfylgni með Samgöngusáttmálanum er á vettvangi stjórnar SSH .
Áfangastaða- og markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Álag í skólastarfi - ástæður og úrbætur
Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu
Áætlun um landnotkun, húsnæði og samgöngur
Dreifikerfi - greining á samtengingu
Efling útivistarsvæða með sérstakri áherslu á utumallt.is
Endurnotkun á textíl
Farsældarráð sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Farsældarverkefni
Fjölsmiðjan
Forvarnir á tímum Covid-19
Forvarnir og geðrækt hjá ungmennum á höfuðborgarsvæðinu
Fráveitumál höfuðborgarsvæðisins
Gildandi svæðisskipulag
Heimilislausir með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Hringrásarhagkerfið
Hvítá - Hvítá
Hvatning til nýsköpunar
Höfuðborgargirðing
Innkaupavefur
Innviðagreining og þróun húsnæðismála
Loftslagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið
Lykiltölur hins byggða umhverfis
Markaðssetning höfuðborgarsvæðisins
Móttaka barna með fjölbreyttan menningarbakgrunn
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Nýting gervigreindar í starfsemi sveitarfélaga
Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Rafúrgangur
Samgöngusáttmálinn
Samspil og virkni velferðarþjónustu
Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu
Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Sorpa bs.
Sóknaráætlun
Sóley styrktarsjóður
Staða og þróun íbúða- og atvinnuhúsnæðis
Staðfestar breytingar á svæðisskipulagi
Stafræn þjónusta
Strætó bs.
Svæðisskipulag
Svæðisskipulagsbreytingar í auglýsingu
Útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins
Útivistarsvæði kortlögð á höfuðborgarsvæðinu
Úrgangur og meðhöndlun úrgangs
Tækifæri til útivistar við vötn, haf og gönguskíðaiðkun
Vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins
Veikindafjarvera - samstillt átak
Vímuefnavandi - ráðgjöf til foreldra unglinga
Þróunaráætlun 2024
Fréttir af verkefnum
„Grá svæði“ í velferðarþjónustu hafa áhrif á fólk og fjárhag sveitarfélaga
Skýrslan Samspil og virkni velferðarþjónustu var nýverið kynnt á fundi sveitarstjórnarfólks og þingmanna. Hún fjallar um „grá svæði” og óskýra verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga við veitingu velferðarþjónustu og afleiðingar af því.
Grá svæði í velferðarþjónustu kosta sveitarfélög milljarða
Eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins árið 2025 var „Samspil og virkni velferðarþjónustu í víðum skilningi“ en markmið þess var að skerpa á áskorunum ríkis og sveitarfélaga í velferðarmálum og greina hvar óvissa ríkir um verkaskiptingu og kostnað.
Samningur um aukinn stuðning við foreldra
SSH og Foreldrahús hafa gengið frá samningi um ráðgjöf og stuðning við foreldra barna og unglinga sem eru byrjuð að sýna áhættuhegðun tengda vímuefnaneyslu.
Innviðagreining á höfuðborgarsvæðinu
Greining á innviðum varpar ljósi á aðgengi íbúa að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Ferðavenjukönnun 2025 birt
Ný ferðavenjukönnun var gerð í október 2025 og birt nýlega.
Samningur um þróun foreldraleiðarvísis undirritaður
Samningur SSH við Heimili og skóla markar upphaf vinnu á leiðarvísi fyrir foreldra.
Úrbætur í skólastarfi
Ný skýrsla sýnir fram á tækifæri til úrbóta í skólastarfi, með áherslu á að draga úr álagi meðal starfsfólks í grunnskóla
Samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða
Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, 13. maí 2026. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.
Síðasti fundur kjörtímabilsins
Föstudaginn 8. maí fór 146. fundur svæðisskipulagsnefndar fram. Fundurinn var jafnframt síðasti fundur starfandi nefndar fyrir sveitarstjórnarkosningar.
Svæðisskipulagsnefnd heimsótti Kjósarhrepp
Ein af áherslum nefndarinnar fyrir kjörtímabilið 2022- 2026 er að heimsækja aðildarsveitarfélög SSH og kynnast starfi þeirra og áherslum í skipulagsmálum. Þann 10. apríl síðastliðinn heimsótti svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins Kjósarhrepp í fallegu vorveðri. Fundurinn var haldinn í stjórnsýsluhúsinu Ásgarði.