Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins

Sérstakt svæðisskipulag er í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið

 

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins tekur til byggðaþróunar, landnotkunar, umhverfismála, samgangna og veitukerfa, auk þess sem samfélagsleg þróun á svæðinu var skoðuð sérstaklega við gerð þess.

 

Svæðisskipulagið, sem gildir fyrir árin 2001-2024 var endanlega staðfest af umhverfisráðherra í desember 2002 , að undangenginni staðfestingu allra aðildarsveitarfélaganna.

 

Sérstök samstarfsnefnd, „Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins“ hafði umsjón með  svæðisskipulagsins. Þessi nefnd hefur síðan starfað áfram samkvæmt sérstakri samþykkt og á vettvangi hennar er fjallað um allar breytingar sem gera þarf á svæðisskipulaginu. Í nefndinni eiga sæti 2 fulltrúar frá hverju sveitarfélagi, auk fulltrúa frá Skipulagsstofnun.

 

Hér má nálgast upplýsingar um svæðisskipulagið:

 

boximg1- Greinargerð með svæðisskipulagi 

boximg1- Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 skipulagsuppdráttur

boximg1- Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins – þróun byggðar og skipulagstölur 

boximg1- Starfsreglur Samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðsisins