|
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ig og reka þrjú byggðasamlög sem mynduð hafa verið til að annast tiltekna þjónustu og verkefni fyrir hönd eigenda þeirra:
STRÆTÓ bs.
Meginhlutverk byggðasamlagsins er að veita almenna þjónustu á sviði almenningssamgangna, innan þess fjárhagsramma sem samlaginu er sett og nýta það fjármagn sem best til að koma til móts við óskir og væntingar viðskiptavina. Undir þetta hlutverk fellur rekstur almenningsvagna (strætó), ferðaþjónusta fatlaðra og ferðaþjónusta eldri borgara.
Stefna byggðasamlagsins er að auka þjónustu og gæði til viðskiptavina sinna, efla almenningssamgöngur og auka hagkvæmni þeirra.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Strætó bs: www.straeto.is
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS)
Starfssvæði SHS nær til sveitarfélaganna sjö sem standa sameiginlega að rekstri liðsins. Þau eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Álftanes. Liðið veitir þjónustu við Kjósarhrepp samkvæmt samningi og hefur skyldur um aðstoð við nærliggjandi sveitarfélög samkvæmt starfssamningum. Starfssvæðið nær frá Hvalfjarðarbotni í norðri, til Straumsvíkur í suðri og Bláfjallasvæðisins í austri. Íbúar á starfssvæðinu voru rösklega 190 þúsund í ársbyrjun 2007 eða nálægt 65% landsmanna.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sér um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt samningi við heilbrigðisráðuneytið og hefur gert árum saman. Hjá SHS er lagður mikill metnaður í menntun, endurmenntun sjúkraflutningamanna og hefur sjúkraflutningamönnum með bráðatæknimenntun fjölgað jafnt og þétt. Einnig er samningur í gildi milli Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. og Faxaflóahafna sf. um aðgerðir vegna hugsanlegra mengunaróhappa á hafnarsvæði Faxaflóahafna sf. Í samningnum felst að slökkviliðið fer með stjórnun aðgerða þegar mengunaróhöpp verða. Búnaður Faxaflóahafna sf. sem ætlaður er til nota í mengunarslysum verður í vörslu slökkviliðsins auk þess sem slökkviliðið mun annast undirbúning og skipulagningu nauðsynlegra æfinga. Starfsmenn SHS eru tæplega tvö hundruð.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu SHS: www.shs.is
SORPA bs.
Í stofnsamningi SORPU bs. kemur fram að tilgangur byggðasamlagsins er að annast meðhöndlun úrgangs sbr. lög nr. 55/2003 fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru stofnaðilar að því. Verkefni byggðasamlagsins eru m.a. eftirfarandi:
Að útvega og starfrækja urðunarstað fyrir sorp.
Bygging og rekstur móttökustöðva.
Flutningur á sorpi frá móttökustöðvum.
Framleiðsla og sala á eldsneyti og orku úr sorpi eftir því sem hagkvæmt þykir.
Vinnsla og sala á efnum úr sorpi til endurnýtingar eftir því sem hagkvæmt þykir.
Samstarf og viðskipti við fyrirtæki er starfa á sviði endurvinnslu úrgangsefna eftir því sem hagkvæmt þykir.
Að fylgjast með tækniþróun á sviði sorpeyðingar og endurvinnslu.
Að sjá um eyðingu hættulegra úrgangsefna.
Að þróa nýjar aðferðir til þess að vinna verðmæti úr úrgangsefnum.
Að sinna kynningu á verkefnum SORPU bs. og gildi umhverfissjónarmiða við meðhöndlun sorps.
Gera svæðisáætlanir sbr. lagakröfur hverju sinni.
Önnur verkefni sem aðildarfélögin fela byggðasamlaginu sérstaklega.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Sorpu sb: www.sorpa.is
|